Vilji íbúa í Grafarvogi virtur
19.11.2009 | 11:59
Með ákvörðun Menntaráðs Reykjavíkur í gær var íbúalýðræðið virt í Grafarvogi. Ákveðið var að hverfa frá öllum hugmyndum um safnskóla á unglingastigi í norðanverðum Grafarvoginum. Menntaráð samþykkti þess í stað að skólarnir í Grafarvogi tækju upp aukið samstarf sín á milli og styrkja þannig námsval nemenda á unglingastigi. Svona á íbúalýðræði að virka en ekki vera orðin tóm eins og oft vildi brenna við hjá R-listanum sáluga.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook